Ertu klikk?
Á síðustu árum hefur almenn umræða um andlega heilsu aukist og er það ekki að ástæðulausu. Lengi voru geðheilbrigðismál feimnismál og fólk sem var veikt á geði upplifði skömm. Vinstri græn í Árborg vilja stórauka fræðslu og forvarnir um geðheilbrigði í skólum sveitarfélagsins. Þessi þróun er vissulega jákvæð og á réttri leið, yngri kynslóðin er […]
Ráðdeild í fjármálum – Stöndum undir sterkri þjónustu við fjölskyldur og velferðarmál
Um fjármál í Norðurþingi Nýlega var samþykktur í sveitarstjórn ársreikningur fyrir árið 2021. Lítilsháttar hagnaður varð af rekstri sveitarfélagsins á A og B hluta eftir taprekstur á árinu 2020 þegar Covid áhrifa gætti sem mest. Hið jákvæða varðandi árið 2021 er að atvinnulífið varð mun sterkara á ýmsum sviðum í fyrra heldur en búist var […]
Falleg orð og fordómar
Við sem skrifum þessa grein viljum vekja athygli á málefnum fatlaðs fólks í Hafnarfirði. Við brennum fyrir þennan málaflokk. Persónuleg reynsla af viðmóti og framkomu bæjaryfirvalda þegar kemur að atvinnumálum ungs fatlaðs fólks á þessu kjörtímabili var í upphafi ekki góð og ekki gert ráð fyrir að fötluðum ungmennum stæðu til boða þau fjölbreyttu störf […]
Aðgengi fyrir alla?
Árið 2016 fullgilti Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Í fyrstu grein samningsins er kveðið á um að markmið hans sé að efla, verja og tryggja að fatlað fólk skuli njóta allra mannréttinda og grundvallarfrelsis til jafns við aðra. grein samningsins: Aðgengi Til að gera fötluðu fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi og […]
Reykjavík á að vera hjólaborg
Hjólreiðar skipta mig miklu máli. Ég hef hjólað til og frá vinnu um árabil og ég vil ekki skipta yfir í aðra samgöngumáta. Fyrir mér eru kostirnir við hjólreiðar ótvíræðir, en með því að stunda þessu léttu hreyfingu kvölds og morgna næ ég að viðhalda líkamlegri og andlegri heilsu. Ég næ að spara stórar fjárhæðir […]
Hver er munurinn á því að neyta fíkniefna í jakkafötum eða í neyðarskýli?
Umræðunni um einstaklinga sem glíma við fíknisjúkdóma hættir til að verða afar neikvæð gagnvart þeim sem um ræðir. Fyrst og fremst eru þetta einstaklingar sem eiga jafnan tilverurétt í samfélaginu líkt og aðrir. Það er samfélagslegt álitamál að einstaklingur megi ekki neyta vímuefna nema innan ákveðins ramma sem samþykktur er af samfélaginu. Einstaklingurinn sem samfélagið […]
71 ungliði í framboði
Í sveitastjórnarkosningum 2022 tekur 71 ungliði sæti á listum VG vítt og breitt um landið. Þar af eru fjórir ungliðar, oddvitar á listum VG í sínu sveitarfélagi og 18 þeirra sitja í 2.-5. sæti á 11 listum. Þetta sýnir að ungt fólk lætur sig samfélagið varða og vill hafa áhrif, og gengur þvert á það […]
Karíókí kvöld UVG 5. maí!
Ung vinstri græn bjóða frambjóðendum sem og kjósendum að syngja sig í kosningastuð á Karíókíkvöldi, fimmtudaginn 5. Maí klukkan 20.00 – 22.00. Hittumst á kosningaskrifstofu VG í Reykjavík, Bankastræti 2. Léttar veitingar, almenn gleði og góður playlisti. Óskalög velkomin.