Ung vinstri græn vilja að:
- Sporna gegn klámvæðingu og staðalímyndum kynjanna með því að leggja áherslu á aukna fræðslu meðal grunn- og framhaldsskólanema um samskipti kynjanna, kynfrelsi og kynlíf.
- Hugtakið klám verði skýrt skilgreint í lögum og gera þá kröfu til löggæslunnar að ákvæðum um klám sé framfylgt.
- Hérlendis sem í öðrum heimshornum sé réttur kvenna og yfirráð þeirra yfir eigin líkama hvergi skertur, og þær hafa rétt til fóstureyðinga því samkvæmt.
- Kynjasjónarmið verði höfð til hliðsjónar við mótun opinberrar stefnu og allar aðgerðir hins opinbera.