Lýðræði og sanngirni í skólastarfi

Ung vinstri græn vilja að:

  • Lýðræðisleg þátttaka nemenda í skólastarfi sé tryggð, þeir aldir upp í lýðræðislegum vinnubrögðum og upplýstir um réttindi sín og skyldur.
  • Nemendur framhalds- og háskóla njóti réttinda til jafns við einstaklinga á atvinnumarkaði, þar með talið réttinda til veikindadaga, hádegisverðarhlés og annarra almennra réttinda.
  • Brottfall í framhaldsskólum sé lágmarkað með því að því að bjóða uppá fjölbreyttar mislangar námsleiðir  og standa vörð um félagslegt umhverfi í skólasamfélaginu. 
  • Tryggt verði að nemendur á öllum skólastigum geti lokið þeirri námsleið sem þeir hefja þar sem þeir hefja hana. 
  • Boðið verði upp á viðunandi námsaðstöðu fyrir nemendur með sérþarfir.