Sameiginleg yfirlýsing ungmennafélaga

Sameiginleg yfirlýsing ungmennafélaga um andstöðu við útlendingafrumvarpið.

Grasrótarhreyfingin, Fellum frumvarpið fordæmir frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (alþjóðleg vernd, brottvísunartilskipunin, dvalar- og atvinnuleyfi), nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd), Í daglegu máli kallað útlendingafrumvarpið.

Við styðjum og tökum undir umsagnir Íslandsdeildar Amnesty International, Kvenréttindafélags Íslands, SOLARIS, Rauða krossins, Unicef á Íslandi, UN Women og Þroskahjálpar.

Við sem ungmenni í landinu höfum verulegar áhyggjur af skelfilegri þróun núverandi ríkisstjórnar í málefnum útlendinga. Við krefjumst þess að allar lagabreytingar sem standa til skulu vera gerðar með mannréttindi að leiðarljósi. Frumvarpið stangast á við ákvæði í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem er lögfestur í íslenskum lögum. Þar með ber stjórnvöldum skylda til að fylgja honum. En í 3. gr. Barnasáttmálans kemur fram að stjórnvöld eigi að taka ákvarðanir sem varða börn, byggt á því sem er börnunum fyrir bestu. Auk þess þá brýtur frumvarpið 1. gr. jafnréttislaga. Frumvarpið veitir stjórnvöldum heimild til að senda flóttamenn til ríkja sem ekki eru talin örugg móttökuríki eins og Rauði krossinn hefur bent á.

Þar má nefna Ungverjaland og Grikkland. Þetta er brot á mannréttindum og réttindum barna. Með þessu frumvarpi verða konur á flótta settar í enn viðkvæmari stöðu og þá eykst hættan að þær verði fyrir ofbeldi í sínu heimalandi eða öðrum óöruggum móttökuríkjum. Einnig hefur þetta áhrif á aðra jaðarhópa og fólk í viðkvæmri stöðu og þetta frumvarp stefnir þeim í hættu. Frumvarpið tekur ekki tillit til fatlaðs fólks, hinsegin og trans einstaklinga. Það verður að taka tillit til sérstöðu fólks þar sem lagabreytingarnar munu ekki hafa sömu áhrif á allt fólk.

Við teljum að harkalegri og strangari stefna í málefnum flóttafólks og umsækjanda um alþjóðlega vernd sé röng leið að skilvirkari kerfi. Það að skerða verulega rétt flóttamanna að fá mál sín skoðuð nægilega vel, á grunni rannsóknarreglu stjórnsýsluréttar og réttlátrar málsmeðferðar, er mannréttindabrot. Í frumvarpinu kemur fram að heilbrigðisþjónusta, lágmarksaðstoð og réttur til húsnæðis falli niður 30 dögum eftir synjun á alþjóðlegri vernd. Það veldur okkur miklum áhyggjum að velferð og öryggi flóttamanna sé hunsað í þessu frumvarpi og að þau njóti ekki grundvallarmannréttinda.

Eftirfarandi félög skora á Dómsmálaráðuneytið, forseta Alþingis Birgi Ármannsson og ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að draga frumvarpið til baka og vinna það upp á nýtt í samstarfi við fagaðila þar sem virðing fyrir jafnrétti og mannréttindum eru höfð í hávegum.

Ungliðahreyfing Íslandsdeild Amnesty International
Ungmennaráð Þroskahjálpar
Ungmennaráð Barnaheilla – Save the Children á Íslandi
Ungmennaráð UN Women á Íslandi
Ungir umhverfissinnar
Röskva – stúdentahreyfing
Háskólafélag Amnesty
Femínistafélag Háskóla Íslands
Q – félag hinsegin stúdenta / Q – Queer Student Association
Ung vinstri græn – UVG
ROÐI – Ungir Sósíalistar
Ungt jafnaðarfólk
Ungir Píratar
Uppreisn: Ungliðahreyfing Viðreisnar