Í sátt við umhverfi
- Gert verði átak í rannsóknum á vistvænum orkugjöfum á borð við vindorku, sólarorku og virkjun sjávarfalla.
- Aukin áhersla verði á raforku í íslensku atvinnulífi.
- Dregið verði markvisst úr orkunotkun skipaflotans á aflaeiningu og hvatt til varkárni í umgengni við auðlindina og allt lífríki sjávar.
- Störfum í tengslum við leiðsögn og fræðslu um umhverfi og náttúru verði fjölgað, m.a. í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum.
- Komið verði á fót nýjum starfsgreinum á sviði umhverfisfræða.
- Lögð verði áhersla á að fullvinna afla, hætta brottkasti sjávarfangs og auka nýtingu alls lífræns úrgangs sem til fellur í sjávarútvegi jafnt á sjó og landi.
- Svigrúm í framleiðslu landbúnaðarafurða og fyrir bændur til að markaðssetja sig og framleiðslu sína verði aukið.
- Óþarfa flutningur afurða á milli landshluta verði stöðvaður og möguleikar á að vinna og versla með afurði sem næst upprunanum verði aukinn.
Í sátt við samfélag
- Spornað verði gegn vaxandi fákeppni í smásöluverslun og komið verði í veg fyrir að hún færist í hendur svo fárra og stórra aðila að þeir nái kverkataki á birgjum og framleiðendum, þ.m.t. afurðasölu bænda.
- Gróði sem sprettur af nýtingarrétti atvinnurekenda á sameiginlegum auðlindum verði skattlagður með sanngjörnum hætti fyrir land og þjóð.
- Öflugu eftirliti verði komið á til að tryggja örugg vinnuskilyrði og að atvinnurekendur mismuni ekki starfsmönnum sínum.
- Opinber þjónusta sem skiptir sköpum um líf og framtíð fólks sé ekki féþúfa einkaaðila.
- Verkfallsrétturinn sé virtur.
- Kjör leik- og grunnskólakennara verði bætt.